Hvaða dýraeigendum er illa við dýr?

Maður skyldi ætla að þeir sem eru umráðamenn dýra væru flestir dýravinir.  Hinir dýraeigendurnir sem er sama um heilsu og velferð dýranna tala um svokölluð gæludýravegabréf sem eru jafnmarktæk og innihaldslýsing matvöru frá evrópsku stórfyrirtæki að nafni Findus.  Ég er sannfærður um að flestir í þessum fámenna hópi hunda- og kattaeigenda sem fara fram á að hætta einangrun dýra við komuna til landsins eru fyrst og fremst að hugsa um að komast skrefi nær inngöngu í ESB.  Allavega greinilegt að velferð dýranna skiptir þá engu máli.  Og að bera fyrir sig fötluðu fólki í þessu máli er fyrirfram úr myndinni því auðvitað er dýravelferð allra dýra á Íslandi rétthærri.
mbl.is Eigendur gæludýra vilja að slakað verði á einangrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband