Ekki er betri músin sem læðist !!!

Hver var það sem tók fyrstu skóflustungu að nýju húsi íslenskra fræða á dögunum sem áætlað er að muni kosta 3,7 milljarða að klára?  Í hvaða kjördæmi skyldi það hafa verið og í hvaða kjördæmi skyldi nú hún Katrín fara fram? Hver var nýlega að setja 500 milljónir í náttúruminjasýningu í Perlunni? Það skyldi þó ekki vera að næsta ríkisstjórn þurfi að reiða fram þessa fjármuni? Svo er þægilegt fyrir nýja formanninn að hafa gamlan aflóga og útbrunninn fyrrverandi formann til þess að sjá um öll formlegu kosningaloforðin og ekki sakar að hafa varaformann sem er nógu vitgrannur til að beina spjótum að sjálfum sér með sínum stórkarlalegum yfirlýsingum í ætt við sjóara sem heldur að sá sem hefur hæst skili mestri vinnu.

Það er hverjum manni ljóst sem hefur til að bera heilbrigða skynsemi að fyrirsögn þessarar fréttar er BULL og eingöngu hluti af baráttuaðferð Katrínar.  Ekki er betri músin sem læðist... 


mbl.is Engin risaloforð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband