Heimskra manna ráð...

Það er magnað hvernig hlutirnir endurtaka sig í sífellu.  Þetta er ekki í fyrsta og væntanlega ekki í síðasta skiptið sem farið er í gríðarlega offjárfestingu í þröngum afmörkuðum geira hér á landi.  Þetta verður svo til þess að opna æð á öllum þeim fjölmörgu sem fyrir voru í greininni og svo kemur bara í ljós hverjum þeirra blæðir út fyrst og hversu margir lifa af.  En eitt er víst að það verður íslenskur almenningur sem borgar brúsann ásamt/með þeim sem verið hafa lengi í gistibransanum.
mbl.is Hótelherbergin voru 706 - verða 4.664
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband