Bloggfærslur mánaðarins, maí 2014

Fullyrðingin er algjörlega fáránleg !!!

Það er með ólíkindum að fjölmiðlar landsins taki undir svona ruglyfirlýsingar, t.a.m. með því að skella svona bulli í fyrirsögn.  Ég held að menn ættu frekar að ræða við sérfræðinga okkar í fíkniefna og áfengisvandamálum en að flytja hér inn gamla dópista sem þessvegna gætu átt hagsmuna að gæta í sölu allskyns efna.  Einstefnan í þessari umræðu hjá fjölmiðlum er afar einkennileg.  Birtar eru "fréttir" af því að það sé fínt og gott að dópa algjörlega án nokkurra faglegra raka frá læknum og öðrum með sérfræðiþekkingu á þessum málum.  Það er nefnilega alls ekki næg ástæða fyrir lögleiðingu dóps að það sé handfylli af gömlum hasshausum á Alþingi Íslendinga sem halda að í lagi sé að synda uppdópaðir í gegnum háskólanám vegna þess að þeir gerðu það sjálfir og það þótt þeir telji sjálfir að þeir hafi sloppið óskaddaðir í gegnum það.
mbl.is Flestir nota vímuefni skynsamlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband