Arfavitlaus nálgun!!!
31.1.2014 | 09:42
Það er alveg fáránlegt að sleppa algjörlega kolvetnum. "Án kolvetna kúr" er bara út í hött og ótrúlegt að vera að bera slíkt saman við lágfitukúr. Til að samanburðurinn hefði verið marktækur væri Lágkolvetna vs. Lágfitu mjög fróðlegt. Sá sem var á "ánkolvetna" hefði ætt að borða grænmeti (að minnsta kosti það sem ekki er himinhátt í kolvetnum). Af þessari arfavitlausu "rannsókn/tilraun" er svo dregin sú ályktun að við þurfum á því að halda að borða sykur.....þvílíkt og annað eins bull. Það kæmi ekki á óvart að einhver stór hagsmunaaðili í sykur/sætindabransanum hefði greitt þessum mönnum fyrir "rétta" niðurstöðu.
Úr 60 kílóum í 111 kíló | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ég losaði mig við 20 kg á einu ári með því að minnka matarskamtana um 30‰ fyrst og svo 20‰ í viðbót þegar líkaminn jafnaði sig.
mesta þingdartapið varð fyrstu mánuðina ] 2 – 6 }.
ath . ég bætti ekki við mig máltíðum.
Guðleifur R Kristinsson, 31.1.2014 kl. 19:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.