Nafnlausar bloggfærslur...
8.2.2014 | 09:50
Ég hef sannfærst æ meir um það að banna skuli nafnlausar bloggfærslur. Hreinlegast væri að gera það með lagasetningu, en þangað til væri sómi að því fyrir "eigendur" bloggvefja hér á landi ef þeir myndu eyða öllum nafnlausum bloggurum út úr sínum gagnasöfnum ásamt þeim sem hafa skráð sig með algengum nöfnum án aðgreiningar frá alnöfnum þeirra í þjóðskrá/símaskrá. Þessi aðgerð yrði líklega til þess að fækka nettröllum í bloggheimum því menn yrðu að standa og falla með sínum skrifum. Ég ætla ekki að nefna nein af þessum nettröllum...taki þeir til sín sem eiga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.