Viðhald...
23.7.2014 | 09:09
Það hefur lítið að segja að ætla sér að fara í viðgerðir á "næstu árum" á stórskemmdum vegum um allt land fyrir þá sem eru nú þegar að aka eftir ónýtum vegum eftir sparnað undanfarinna ára. Hanna Birna bætti svo um betur í vor að sögn vegagerðarmanna með því að taka tugi eða hundruði milljóna af fjársveltum viðhaldssjóðum til að kaupa sér frið fyrir fjölmiðlaumfjöllun um vondan ferðamannaveg um Kjöl. Sveitavegir sem vegagerðin á og ber ábyrgð á hafa margir hverjir ekkert viðhald fengið í langan tíma og litlar og stórar holur ásamt moldarpyttum þar sem burðarlagið er farið eru að verða algeng sjón með tilheyrandi skemmdum á bílum og hættu á slysum. Ég bíð hér með Vegamálastjóranum og Hönnu Birnu í kaffisopa við fyrsta tækifæri svo þau geti kynnt sér hvaða afleiðingar "ekkert" viðhald hefur á malarvegi. Ég bendi þeim á að aka varlega svo þau lendi ekki utanvegar á leiðinni til mín og best færi á því að koma ekki á fólksbíl svo pústkerfið verði ekki eftir einhversstaðar á leiðinni.
Vegakerfið fari í forgang | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.