Dagur deilir fasteignagjöldum af Hörpunni með nágrönnum.
19.5.2015 | 16:33
Dagur skælir hátt yfir því að þurfa að borga lítinn hluta kostnaðar við starfsemi Sinfóníuhljómsveitar Íslands en minnist ekki á hvað borgin fær í staðinn. Hún fær himinhá fasteignagjöld af Hörpunni sem svo merkilega vill til að er staðsett í Reykjavík. Hún hefur margþættan annan hagnað af Sinfó, s.s. útsvar starfsmanna sem búa væntanlega flestir í Reykjavík og afleiddan hagnað af komu fólks úr öðrum sveitarfélögum til að hlusta á Sinfó. Sennilega ætti borgin að borga stærri hlut í rekstrinum en verið hefur fram að þessu, nema hún sé að fara að deila fasteignagjöldunum og fleiru með nágrönnum sínum...
Vill fleiri sveitarfélög að borðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.